Jeppi með farangursbox á malarvegi á Íslandi, jökull í bakgrunni
Ferðaþjónusta

Beinar bókanir: hvað þarf hótelvefur að gera?

Gestur sem finnur gististaðinn á bókunarsíðu opnar oft vef hótelsins til að bera saman. Hér eru fimm atriði sem ráða því hvort hann bókar þar.

1 mín. lestur

Allar greinar

Bókunarsíður koma gististaðnum á framfæri við gesti sem þekkja hann ekki. Fyrir það taka þær þóknun af hverri bókun. Bein bókun á eigin vef kostar enga þóknun, og samskiptin við gestinn eru þín frá fyrsta degi.

Fyrirvari strax: við höfum ekki enn unnið fyrir hótel. Það sem hér segir byggir á bókunarvefjum sem við smíðuðum fyrir bílaleigu, þar sem ferlið er það sama: framboð, dagsetningar, aukahlutir og staðfesting.

Fimm atriði sem ráða úrslitum

  1. 01

    Verðið sést strax

    Gesturinn kom til að bera saman. Ef verð og lausir dagar sjást ekki án þess að fylla út form fer hann aftur á bókunarsíðuna.

  2. 02

    Bókun í einu ferli

    Dagsetningar, herbergi og aukahlutir á sömu síðu, án þess að opna nýjan glugga með öðru útliti.

  3. 03

    Hraði í síma

    Myndir eru þyngsti hluti hótelvefs. Þær þarf að minnka og hlaða eftir þörfum, annars bíður gesturinn ekki.

  4. 04

    Ástæða til að bóka beint

    Morgunverður innifalinn, sveigjanlegri afbókun eða betra herbergi. Eitthvað sem bókunarsíðan býður ekki.

  5. 05

    Svar utan vinnutíma

    Fyrirspurnir berast á kvöldin. Aðstoðarmaður á vefnum getur svarað algengum spurningum og vísað á laus herbergi.

Hvað þetta skilaði í bílaleigu

Fyrir bílaleiguna FancyRent smíðuðum við vef með bílastilli, stjórnborð fyrir flotann og bókanir og gervigreindaraðstoðarmann tengdan bókunardagatalinu. Fyrirtækið fékk nærri 400 bókanir á fyrstu 2,5 mánuðunum.

Nánar um hvað við smíðum fyrir gististaði á síðunni um hótel bókunarkerfi.

Ertu að byggja eitthvað svipað?

Segðu okkur frá verkefninu og við svörum með nákvæmum upplýsingum.

Byggjum saman

Lesa meira