
Bókunargjöld eða eigin vefur: reiknaðu dæmið
Áskriftarbókunarkerfi taka mánaðargjald og hlutfall af bókunum. Eigin vefur er greiddur einu sinni. Hér er dæmið reiknað með opinberri verðskrá Bókunar.
1 mín. lestur
Hlutfallsgjald af bókunum er lítið þegar salan er lítil og vex með henni. Fast verð fyrir eigin vef er hátt í byrjun og stendur svo í stað. Einhvers staðar skerast línurnar, og það er hægt að reikna.
Verðskrá Bókunar
Samkvæmt verðskrá Bókunar, skoðaðri 16. nóvember 2026, kosta áskriftirnar þetta:
- START: 49 USD á mánuði auk 1,5% gjalds af bókunum sem gjaldið á við.
- PLUS: 149 USD á mánuði auk 1,25%.
- PREMIUM: 499 USD á mánuði auk 1%.
Bókun tekur ekki gjald af Viator-bókunum eða bókunum utan nets í þessum áskriftum. Verð getur breyst, svo athugaðu síðuna sjálfa áður en þú reiknar.
Dæmi: 30 milljónir króna í netbókunum á ári
Miðað við gengið 123,35 kr. fyrir hvern bandaríkjadal og að gjaldið eigi við um allar bókanirnar:
- START: 12 × 49 USD eru um 73.000 kr. og 1,5% af 30 m.kr. eru 450.000 kr. Samtals um 523.000 kr. á ári.
- PLUS: 12 × 149 USD eru um 221.000 kr. og 1,25% eru 375.000 kr. Samtals um 596.000 kr. á ári.
Afmarkað verkefni hjá okkur er frá 250.000 kr., greitt einu sinni, og við tökum ekkert gjald af bókunum. Greiðslumiðlun rukkar sitt í báðum tilvikum.
Hvenær eigin vefur borgar sig
- Flestar bókanir koma beint, úr leit, auglýsingum eða frá fyrri gestum.
- Þú greiðir fyrir umferð og vilt að hún endi á þínum vef.
- Framboðið þarf ferli sem bókunargluggi ræður illa við: aukahlutir, pakkar, verð eftir árstíðum.
Samanburðurinn í heild er á síðunni Valkostur við Bókun. Við tengjumst Bókun ekki á neinn hátt.
Ertu að byggja eitthvað svipað?
Segðu okkur frá verkefninu og við svörum með nákvæmum upplýsingum.


